26

MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982

200 Spánver jar koma með

Real Sociedad til íslands

— Spönsku meistararnir mæta Víkingum á morgun

l'rí llelgu JónNdóttur, frétUriUra Mbl. í Burgw*, Spáni.

VENJULECA byrja æfingar hjá spænsku meisturunum í Real

Sociedad kl. 9 á morgnana. En morguninn sem fréttaritari

Mbl. í Burgos var mættur á æfingavelli félagsins höfðu leik-

menn byrjað daginn kl. 10, því fyrr hætti ekki að rigna eins

og hellt væri úr fötu. Real Sociedad æfir í Lasarte, litlum bæ,

7 km frá sjálfri San Sebastian-borg. Æfingavöllurinn er stað-

settur í fallegu umhverfi í útjaðri Lasarte. Hann liggur í kvos,

vel falinn og því erfítt fyrir ókunnuga að rata að honum.

Sautján leikmenn voru mættir á æfíngu; sjö þeirra skokk-

uðu um völlinn á meðan hinir skiptu sér í 2 lið og spiluðu.

I'jált'ari liðsins, Alberto Ormaechea, lék með og gaf ábend-

ingar inn á milli. Zamora, miöherji í spænska landsliðinu á

11M í sumar, var einnig viðstaddur en æfði lítið því hann er

meiddur og verður ekki með í hvorugum leiknum á móti

Víkingi, 15. og 29. september.

Nokkrir áhorfendur fylgdust

með æfingu liðsins. Mest voru það

börn og unglingar, sem biðu með

blað og penna og báðu síðan

leikmenn um eiginhandaráritun

þegar æfingu lauk. Sum börnin

voru klædd í búning liðsins og

biðu tilbúin til þess að stilla sér

upp fyrir myndatöku með uppá-

haldsleikmanni sínum. Þennan

dag virtust Arconada og López

Ulfarte vera vinsælastir.

Báðir þjálfarar liðsins stjórn-

uðu léttum leikfimisæfingum í

lokin. Æfingu lauk um hádegi.

Eftir æfingu náði fréttaritari Mbl.

í Burgos tali af aðalþjálfara la

Real, Alberto Ormaechea, og fá-

einum leikmönnum liðsins.

Er eitthvað um meiðsli hjá leik-

mönnum liðsins? Verða t.d. allir

landsliðsmennirnir með í leiknum

á Islandi þ. 15. september?

Ormaechea — Zamora, einn af

fimm landsliðsmönnum okkar,

verður ekki með í hvorugum leikn-

um á móti Víkingi vegna meiðsla.

Hann mun ekki leika með la Real

fyrr en um miðjan októbermánuð.

Hafið þið leitað ykkur upplýs-

inga um íslenska knattspyrnu og

þá sérstaklega hvað varðar Vík-

ingsliðið, keppinaut ykkar?

Ormaechea — Nei, við vitum

ekkert meira um knattspyrnu á ís-

landi en við vissum fyrir 2 mánuð-

um. Nema hvað Islandsmótinu

lýkur núna í september, er það

ekki? Á ekki Víkingur eftir að

leika tvo leiki? Adstodar, þjálfari

Real, fer til íslands 10. september

til þess að fylgjast með síðasta

leik Víkings.

Verða hinir fjórir landsliðs-

mennirnir (Satrústegui, Uralde,

López Ufarte og Arconada) með í

þessum 2 leikjum ?

Ormaechea — Það er ekki hægt

að segja neitt ákveðið um það enn-

þá. Þeir eru allir í ágætu formi

þessar vikurnar og ef ekkert kem-

ur fyrir býst ég við að þeir verði

með í leiknum á íslandi.

Ertu bjartsýnn á árangur la

Real?

Ormaechea — Já, maður á ætíð

að vera bjartsýnn fyrir hvern leik.

I fyrstu lítur út fyrir að íslenska

liðið, Víkingur, sé ef til vill ekki

erfiður andstæðingur fyrir la

Real, en það versta sem þú gerir er

að  vanmeta  fyrirfram  andstæð-

inginn. Einnig er slæmt að við

þekkjum ekkert til liðsins. í

knattspyrnu getur allt skeð, því er

ómögulegt að segja eitthvað til um

úrslit. En strákarnir eru einhuga

um að komast áfram í aðra um-

ferð keppninnar.

Roberto López Ufarte, 23ja ára,

er framherji hjá la Real Sociedad.

Hann lék með spænska landslið-

inu á HM í sumar.

Hvernig líst þér á að leika á

móti íslensku liði í 1. umferð Evr-

ópukeppni meistaraliða?

López Ufarte — Vel, la Real

hafði heppnina með sér að þessu

sinni að lenda á móti íslenska lið-

inu Víkingi. Ég tel að við eigum

mikla möguleika á að komast

áfram í keppninni. Við erum allir

mJ°K bjartsýnir á góðan árangur

Real án þess að við vanmetum ís-

lenska liðið, sem er okkur ollum

gjörsamlega óþekkt.

Hefur enginn ykkar farið til Is-

lands?

Ufarte: Nei, enginn af okkur hef-

ur heimsótt ísland. Ég vil taka

það fram hér að ég hlakka til þess

að fara þangað. Engum hjá Real

datt í hug að hann aetti eftir að

leika á móti liði frá íslandi. Við

urðum allir mjög undrandi að

heyra hverjir yrðu andstæðingar

okkar í keppninni.

Þtí þekkir þá líklega lítið til ís-

lenskrar knattspyrnu?

Ilfarte: — Ekki neitt.

Væri ekki meira spennandi fyrir

ykkur og áhangendur la Real að

leika á móti þekktara og sterkara

liði?

Ufarte: — Nei, mér var sama

hvaða lið lenti með la Real. Við

hjá la Real hofurn mikinn áhuga á

að komast áfram og munum reyna

okkar besta til þess að ná því

takmarki. Vissulega gefur það

okkur meira traust að vita að Vík-

ingur hefur ekki gert garðinn

frægan í alþjóðakeppnum enda

þótt það sé með þeim bestu á ís-

landi. Og eins og ég sagði áðan þá

hlakka ég til fararinnar til Is-

lands. Mér finnst gaman að ferð-

ast og það er alltaf skemmtilegt

að kynnast nýju og algjörlega

ókunnu landi. Heyrðu, hvað er

hægt að kaupa á íslandi?

Næsta sunnudag byrjar deild-

arkeppnin hérna á Spáni. Eruð þið

hjá Real tilbúnir í slaginn ?

Ufarte: — Já, við stefnum að

sjálfsögðu að 3. sigrinum í röð.

Það er góð samstaða meðal okkar

eins og verið hefur undanfarin ár.

Hvaða lið telur þú hættulegast

eða erfiðustu andstæðingana?

Ufarte: — Ekkert lið er óvinur

Real. Við virðum þau öll. Við kvíð-

um ekki meira fyrir að leika á

móti einu liði frekar en öðru. Real

þarf ekki að óttast neitt lið.

Hver er skoðun þín á Mara-

dona?

Ufarte: — Hann er mjög góður

leikmaður. Því neitar enginn. Get-

ur sýnt knattspyrnu sem enginn

annar leikmaður gerir. Hann er

því einstakur hvað mörgu varðar.

Það er bara að sjá hvort hann að-

lagast spænskri knattspyrnu, sem

er mjög ólík þeirri suður-amer-

ísku. Það er miklu meiri harka

hérna.

Hvað var að spænska landslið-

inu á HM í sumar?

— Óheppni fylgdi okkur frá

byrjun. Eintóm óheppni. Við erum

ekki svo slæmir eins og virtist í

keppninni. Óheppnin elti okkur á

röndum...

Hvernig er æfingum háttað hjá

la Real?

• Blaðamaður Mbl. i Spáni ræoir við Arconada markvörðinn heimsfræga í

liði Real Sociedad.

López Ufarte brosir og segir að-

eins: leyndarmál...

Strax eftir síðustu spurninguna

þyrptust krakkar að López Ufarte

og báðu hann um eiginhandarárit-

un og að fá að vera á myndum með

honum.

—  Þetta er daglegt brauð hjá

ykkur, er ekki svo?

—  Jú, var svarið og virtist sem

þessi lágvaxni broshýri knatt-

spyrnumaður kynni vel að meta að

vera beðinn um að stilla sér upp

=*4»i.

• Gatrinstequi gaf sér tíma fyrir eitt bros og eina mrnd, en með honum á

myndinni er Helga Jónsdóttir, fréttaritari Mbl. i Spini.

— Á sumrin byrjum vð æfingar

kl. 9 til 11 og síðdegis kl. hálfsjö.

Yfir vetrarmánuðina æfum við

eingöngu á morgnana. Byrjum kl.

9.

Hverju viltu þakka velgengni la

Real síðustu 2 árin ?

L.U. — Góðum þjálfara, góðum

anda og samstöðu meðal allra

leikmanna liðsins um að gera góða

hluti.

Þið hjá Ja fleaJ eruð aJJir úr

Baskahéruðunum, erþað ekki?

L.U. — Allir leikmenn liðsins

eru uppaldir hér í Baskalandi

enda þótt þeir fæddust ekki allir

hérna.

Er vel borgað fyrir að vera at-

vinnuknattspyrnumaður á Spáni?

L.U. — Það vita allir að sum

félög geta borgað meira en önnur.

Real Madrid og Barcelona eru rík-

ustu félögin hér á Spáni. Besta

dæmið er Maradona ...

Að lokum, ert þú ánægður með

þín laun ?

við hlið smápilta klædda búningi

la Real.

Jesús Satrústegui Azpiroz, 28

ára, framherji og fastur landsliðs-

maður síðustu árin.

Ertu ánægður að þurfa að leika

á móti íslensku Hði?

Satrúst. Ég þekki ekki neitt til

íslenska liðsins, keppinauts okkar,

né íslenskrar knattspyrnu í heild.

Gefur það la Real meiri von um

sigur þar eð Víkingur er eingöngu

skipað áhugamönnum ?

Satrúst. Það þarf ekki að þýða að

þetta verði auðveldir leikir fyrir la

Real. Áhugamannalið geta oft ver-

ið betri en mörg atvinnumannalið-

in.

Satrústegui gaf sér ekki tíma

fyrir fleiri spurningar. Hann árit-

aði örfá blöð, stillti sér upp fyrir

eina mynd og var síðan rokinn af

stað í bílnum þar sem kona hans

og tvö börn biðu eftir honum.

Markvörður liðsins, Luis Miguel

Arconada, tók lífinu með meiri ró.

Þessi 28 ára gamli knattspyrnu-

maður er sá leikmaður la Real er

flesta landsleiki hefur spilað, nær

40. Arconada tók vel í að svara

nokkrum spurningum. „Ég tala

ekki við Islending á hverjum

degi".

Hvað segir þú um að það að la

Real mun leika á móti óþekktu Hði

frá Islandi?

Arconada. — Fyrir mig er það

ánægjuleg tilbreytni.

Þekkirðu einhvern íslenskan

knattspyrnumann, sem leikur með

erlendu atvinnumannaliði?

Arconada. — Nei, ekki neinn. Ég

er vel kunnugur liðum þeim er

léku á HM og ég fylgist með

knattspyrnunni í Frakkland. Þar

fyrir utan ...

Áttu von á að leikirnir á móti

Víkingi verði auðveldir fyrir ykk-

ur?

Arconada. — Það á aldrei að

hugsa fyrirfram að einhver leikur

verði auðveldur. Við þekkjum ekki

til íslenskrar knattspyrnu. Enginn

okkar hafði áður heyrt getið um

Víkingsliðið. Það er slæmt að

þurfa að leika á móti liði, sem

maður Jie/ur aldrei séð spila.

Heldurðu að þetta verði „gott"

ár fyrir la Real í deildarkeppn-

inni?

Arconada. — Við erum bjartsýn-

ir á góðan árangur liðsins.

Þið lékuð mjóg illa í leiknum

gegn Real Madrid síðastliðinn

sunnudag í Cádiz...

Arconada. — Það er skiljanlegt,

Real Madrid var búið að leika átta

leiki núna á stuttu tímabili, en við

aðeins einn.

Er Real Sociedad skipað sömu

leikmönnum og í fyrra ?

Arconada — Alonso (landsliðs-

maður) var seldur til Barcelona.

Tveir eða þrír leikmenn hafa hætt

því þeir fengu ekki að spila. Að

öðru leyti er Hðið skipað sömu

leikmönnum og síðastliðin 5 ár.

Hvað viltu segja um áhangend-

urlaReal?

Arconada. — Þeir eru frábærir

og styðja okkur að öllu leyti.

Sækja vel leiki þegar við spilum

og hvetja okkur (um 200 mannff

munu fylgja la Real til íslands

vegna leiksins í Reykjavík þann

15. september).

Er Maradona 1.300 milljóna

peseta virði?

Arconada. — Ég dæmi ekkert

um það. Hann er frábær leikmað-

ur en á eftir að mæta erfiðleikum

hérna. Spönsk knattspyrna er

miklu harðari en sú sem leikin er í

S-Ameríku. Auk þess verður sér-

staklega lögð áhersla á að dekka

hann í hverjum leik. Tíminn mun

skera úr um það hvort hann stenst

álagið. Áhorfendur munu krefjast

mikils af honum.

— Er Barcelona hættulegasti

andstæðingurinn ?

Arconada. — Nei, af hverju?

Viltu segja eitthvað um HM að

lokum ?

Arconada. — Ég er reynslunni

ríkari.

vikingur newspaper:morgunblaÐiÐ lang:is arconada